top of page
Knattspyrnuævintýri Ítalíu með Emil Hallfreðs heldur áfram „Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemm

Knattspyrnuævintýri Ítalíu með Emil Hallfreðs heldur áfram

„Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemmtilegar en á sama tíma árangursríkar og krefjandi. Við munum fara vel yfir öll grunnatriði leiksins í jákvæðu, uppbyggjandi og öruggu ítölsku umhverfi. Ég vil að krakkarnir fái áskoranir við hæfi og upplifi allar þær mögnuðu tillfinningar sem fótboltinn færir okkur.“

Emil Hallfreðs landsliðs- og atvinnumaður til 20 ára.

Æfingarnar fara fram á Veronello Resort við Gardavatn

Í ár eru 2 dagsetningar í boði fyrir stráka og nú bætum við einni dagssetningu fyrir stelpur.

Strákar
29. júní - 6. júlí 25.júlí-1.ágúst 2025

Stelpur
3. ágúst - 10. ágúst 2025

Knattspyrnuævintýrið

  • Fyrir 13-15 ára (2009-2011) fótboltasnillinga sem elska fótbolta og vilja víkka sjóndeildarhringinn og prufa eitthvað nýtt

  • Frábær ítölsk knattspyrnuþjálfun í fallegu, öruggu, uppbyggjandi og skemmtilegu umhverfi í Veronello Resort við Gardvatn.

  • Þjálfarateymi frá Hellas Verona.

  • Yfirgripsmikil reynsla og þekking. 20 ára landsliðs og atvinnumannaferill á Ítalíu að baki.

  • Frábærar aðstæður til að æfa vel, bæta sig, sjá heiminn, njóta og hafa gaman innan vallar sem utan.

  • Tækni, sendingar, skot, spil, leikir, leikskilningur/taktík og margt annað skemmtilegt.

  • Skemmtiferðir í Gardaland og Caneva Aquapark og að Gardavatni.

  • 26 pláss í boði í hverju ævintýri

Knattspyrnuævintýri Ítalíu með Emil Hallfreðs heldur áfram „Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemm
Knattspyrnuævintýri Ítalíu með Emil Hallfreðs heldur áfram „Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemm

„Við fengum heim jákvæðan strák sem gat ekki hætt að brosa. Þegar hann var búinn að melta þetta og lenda hér heima talaði hann ekki um annað. Þið munuð ætíð eiga stað í hjarta hans eftir að hafa blásið lífi í glæðurnar með fagmennsku, jákvæðni, gleði og samkennd.“

— Herdís Pálmadóttir

Í sumar mun ég bjóða metnaðarfullum knattspyrnumönnum á aldrinum 13-15 ára (2009-2011)  með mér í ógleymanlegt ítalskt fótboltaævintýri. Við munum dvelja og æfa við frábærar aðstæður í Veronello Resort við Gardavatn, en það er æfingasvæði þar sem lið allstaðar frá Evrópu koma saman og æfa, ekki síst á undirbúningstímabilinu.

Ég flýg út og verð með hópnum allan tímann, innan vallar sem utan og passa að allt fari rétt og vel fram. Með mér verða svo góðir ítalskir þjálfarar sem ég hef kynnst náið við störf mín hér ytra sl. 17 ár.

Til að ná árangri þarf að vera gaman og er því helsta markmið ferðarinnar að drengirnir hafi gaman og njóti þess að æfa vel og spila fótbolta í fallegu umhverfi og góðum félagsskap hvors annars og starfsliðsins.

Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemmtilegar en á sama tíma árangursríkar. Við munum fara vel yfir öll grunnatriði leiksins í jákvæðu, uppbyggjandi og öruggu ítölsku umhverfi. Ég vil að strákarnir fái áskoranir við hæfi og upplifi allar þær mögnuðu og jákvæðu tilfinningar sem fótboltinn færir okkur.

Að sjálfsögðu verður líka markmannsþjálfari með okkur sem mun kynna nýjar tæknihugmyndir og koma aðra sýn á markmannsstöðuna, en eins og þekkt er eru ítalskir markmannsþjálfarar hátt skrifaðir innan fótboltaheimsins.

Þó aðalatriði ferðarinnar sé knattspyrna og allt sem að henni snýr að þá munum við líka heimsækja Gardaland og Caneva Aquapark sem eru skemmtigarðar á svæðinu sem/og skoða fegurðina við Gardavatn.

Ég hlakka til að taka vel á móti ykkur á mínum atvinnumanna og heimaslóðum. Njótum þess að spila og æfa fótbolta, sköpum góðar minningar og skemmtum okkur saman á Ítalíu.

Innifalið í verði:

  • Flug

  • Gisting á Veronello Resort og æfingasvæði

  • Fullt fæði

  • Emil Hallfreðsson fararstjóri & þjálfari

  • Þjálfarar frá Hellas Verona & scout frá Hellas Verona

  • Allar rúturferðir á Ítalíu

  • Æfingafatnaður/taska + þvottur alla daga

  • Vatn á æfingum

  • Skemmtiferðir í Gardaland og Caneva World

  • Hjólaferð um Garda

  • Borgaferð til Verona

  • Pizzuveisla

  • Grillsveisla

  • Fyrirlestrar og glaðningur

Skráning á Abler og nánari upplýsingar á

Verð: 390.000 kr.

(Innifalið farastjórn, flug, gisting, fullt fæði, æfingaaðstaða, þjálfun, vatn á æfingum, æfingafatnaður og þvottur, bolti, rútuferðir, Gardaland, Caneva Aquapark o.fl.)

Knattspyrnuævintýri Ítalíu með Emil Hallfreðs heldur áfram „Ég og teymið mitt munum leggja áherslu á að hafa æfingarnar skemm

„Ótrúlega góð upplifun, vel skipulagt, mjög uppbyggjandi. Frábært hvað þeir fengu góða þjálfun og skemmtun. Til fyrirmyndar í alla staði.“

— Tanja Björk Jónsdóttir

bottom of page